Lífshættir kvenna
stelpur, ég bara varð að henda þessu hér inn! This is so sad - but sooooo true;)
- Konur yfir fimmtugt, eignast ekki börn. Þær mundu aldrei muna hvar þær lögðu þau frá sér.
- Ein ráðgátna lífsins er hvernig 750 gr af konfekti verða 2 kg af konu.
- Ég læt hugann reika.., en stundum yfirgefur hann mig
- Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of þröngum skóm.
- Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekkert hvað ég er að gera, veit einhver annar það.
- Með aldrinum verður erfiðara að léttast. Árin, líkaminn og fitan bindast vináttuböndum.
- Ég var einmitt að sættast við gærdaginn, en þá kom þessi dagur
- Stundum finnst mér ég skilja allt, en svo kemst ég aftur til meðvitundar.
- Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af læranúningnum kveikti í sokkabuxunum.
- Undarlegt! Ég hengi eitthvað upp í skáp og eftir smátíma hefur það hlaupið um tvö númer!
- Horrenglur pirra mig! Sérstaklega þegar þær láta út úr sér hluti eins og : "Veistu, stundum bara gleymi ég að borða." Sko, mér hefur tekist að gleyma hvar ég á heima, hvar ég lagði bílnum, hvers dóttir mamma er og hvar ég setti lyklana, En ég hef aldrei gleymt að borða. Hvílík heimska: að gleyma að borða!
- Vinkona mín tók feil á Pillunni sinni og valíuminu sínu. Hún á orðið 14 börn, en henni er eiginlega alveg sama.
- Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.
- Það stóð í grein að dæmigerð einkenni streitu væru: að borða of mikið, kaupa það allt sem manni dettur í hug og að aka of hratt. Er ekki í lagi með þetta lið? Þetta er það sem gefur lífi mínu gildi.
- Ég hef komist að leyndarmáli fatanna frá Victoria's Secret. Leyndarmálið er að engin eldri en þrítug passar í þau.
kannist þið við eitthvað af þessu?
já og svo vantar fleiri nöfn í saumaskapinn, þær sem eru búnar að boða komu sína eru: Hildur Æ - Gulla - Oddný - Steinunn
þið hinar: ætliði ekki að koma???´
Svo er Sólrún að spá í að hafa kynningu á þriðjudagskvöldið hjemme på Dagný, hvernig leggst það í ykkur??
4 Comments:
At 4:37 e.h.,
Oddný said…
kem til dagnýjar, hvort sem er ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu þá ;)
At 2:13 e.h.,
Sólrún Ásta said…
Nákvæmlega...þriðjudagskvöld eru leiðinleg sjónvarpskvöld. En ég get örugglega mætt í saumaskap á miðvikudeginum...klukkan hvað ætliði að hafa það??
At 4:40 e.h.,
Nafnlaus said…
Sorry ég var bara ekki búin að kíkja inn á þessa blessuðu síðu! Ég kem í saumaskapinn, reikna með því að koma á kynninguna líka! :)
Tinna
At 7:21 e.h.,
Nafnlaus said…
Heyrst hefur að þið iðjurnar séu ekki ánægðar með störf stjórnar Eirar og skil ég það mætta vel, En við vissum ekki fyrr en í dag að þið væruð í tíma á föstudaginn:( við vorum búnar að tala við Láru um að gefa öllum frí á föstudaginn og ætlum að ræða við hana aftur um þetta. vonandi náum við að breyta þessu svo þið getið komið með okkur suður.
sjáumst vonandi hressar á djamminu í Reykjavík á fimmtudaginn
kv. Pálína
Skrifa ummæli
<< Home